Íslenska U18 landslið drengja hefur leik í B-deild evrópumótsins í dag. Mótið fer fram í Tallinn í Eistlandi þetta árið og hefst í dag. Þrjú lið komast í A-deild EM að ári og því mikið undir.
Andstæðingar Íslands í þessum fyrsta leik er Georgía. Á evrópumótinu fyrir ári síðan endaði Ísland í 13. sæti mótsins en Georgía í því tíunda en liðin mættust ekki innbyrgðis. Þjálfari U18 landsliðsins er Friðrik Ingi Rúnarsson og honum til aðstoðar er Lárus Jónsson.
Leikur Georgíu og Íslands hefst kl 13:00 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu hér fyrir neðan:
Leikmannahópur U18 landsliðsins sumarið 2017 lítur svona út:
| Andrés Ísak Hlynsson | KR |
| Arnór Sveinsson | Keflavík |
| Bjarni Guðmann Jónsson | Skallagrímur |
| Gabríel Sindri Möller | Njarðvík |
| Hilmar Pétursson | Haukar |
| Hilmar Smári Henningsson | Haukar |
| Hlynur Logi Ingólfsson | Fjölnir |
| Ingvar Hrafn Þorsteinsson | ÍR |
| Ísak Sigurðarson | Haukar |
| Nökkvi Már Nökkvason | Grindavík |
| Orri Hilmarsson | KR |
| Sigvaldi Eggertsson | KR |
Þjálfari: Friðrik Ingi Rúnarsson
Aðstoðarþjálfari: Lárus Jónsson




