Úrslitaleikur A-deildar evrópumótsins fer fram í kvöld en þar mætast Grikkland og Ísrael. Bæði lið hafa vaxið gríðarlega á mótinu og mætast nú í úrslitaleiknum.
Ísrael getur unnið mótið í fyrsta skipti í sögunni en liðið sló Ísland úr leik í átta liða úrslitum. Grikkland sem er á heimavelli hefur sett sér háleit markmið og ætlar sér sigur. Ísland endaði í áttunda sæti mótsins eftir tap gegn Þýskalandi en frekar má lesa um þann leik hér.
Gríðarleg stemmning hefur myndast í kringum gríska landsliðið og hefur mætingin á leiki liðsins verið mjög góð. Samkvæmt nýjustu fregnum á Krít er uppselt á leikinn í kvöld og því komast færri að enn vilja.
Þetta er klárlega leikur sem engin körfuboltaáhugamaður ætti að láta framhjá sér fara og má finna beina útsendingu hér að neðan: