Hér munum við fylgjast með leik Stjörnunnar og Keflavíkur í 8 liða úrslitum Iceland Express deild karla. Liðin voru í 4. og 5. sæti deildarinnar og má því búast við hnífjöfnu einvígi. Búið er að draga út pallana á báðum endum vallarins og fara þeir að fyllast. Það má því búast við svakalegri stemmingu hérna í kvöld.
20:59 – Leik lokið, Stjarnan vinnur með 8 stigum, 95-87.
20:56 – Keith setti seinna vítið og aðeins 10 sekúndur eftir. Leikurinn er svo gott sem búinn. 94-87.
20:55 – Justin Shouse á línuna, setur bæði vítin og forskot Stjörnunnar er komið í 6 stig, 93-87. Halldór Halldórsson tók þrist í næstu sókn Keflavíkur sem klikkar, Keith Cothran tekur frákastið og er sendur á línuna um leið.
20:53 – Halldór Halldórsson fer á línuna með 29 sekúndur eftir, klikkar úr fyrra og setur seinna niður. 91-87 og Stjarnan tekur leikhlé.
20:51 – Justin Shouse svara um hæl, þristur á hinum enda vallarins og Keflavík tekur leikhlé. 91-86 og 43 sekúndur eftir.
20:50 – Ein og hálf mínúta eftir, Keith Cothran kemur Stjörnunni í 5 stiga forskot, 88-83. Valur Orri setur svakalega þrist í næstu sókn og það munar tveimur stigum á liðunum þegar ein mínúta er eftir.
20:48 – Magnús Gunnars að fá sína fjórðu villu, hann er kominn með 15 stig en virkar samt ekki eins og hann á að vera. Það er til mikils ætlast af skyttu af hans kaliberi.
20:47 – Keflavík tekur leikhlé í stöðunni 81-78. Justin Shouse var rétt í þessu að setja fáránlega fade away og húsið sturlaðist. Svona eiga körfuboltaleikir að vera.
20:44 – Í þetta skiptið var það bekkurinn hjá Stjörnunni sem fór í háaloft þegar það virtist vera brotið á Jovan en ekkert dæmt. Snorri Örn, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar lét sína menn heyra það og þeir voru fljótir að setjast aftur niður. 79-78 fyrir stjörnunni.
20:41 – Stjarnan kemst yfir í stöðuni 77-76. Dómarar leiksins þurftu þó að hugsa sig um hvort karfan hefði verið gild því hún kom í þann mund sem skotklukkan gall.
20:36 – Ruðningur á báðum endum vallarins. Keflavík leiðir með þremur stigum og eiga boltan, 71-74.
20:30 – Stjarnan á seinustu sókn leikhlutans, Justin Shouse fer upp í layup í gegnum hálfa Keflavíkur vörnina. SKotið geigaði og því jafnt þegar tíu mínútur eru eftir, 69-69.
20:27 – Leikhlé Keflavík, Stjarnan er komin yfir og það er eitthvað farið að gerast á pöllunum hérna í Garðabænum. Það stefnir í svakalegar lokamínútur. 67-65 og 1:34 eftir af leiknum.
20:25 – Hér með ætlar undirritaður að staðfesta það. Þetta er serían sem fólk á að fylgjast með. Bæði lið eru að setja svakaleg play. Menn eru að sýna úr hverju þeir eru gerðir. Stjarnan með þrjá þrista í röð frá Justin, Marvin og Jovan, 65-65.
20:22 – Marvin fær sína aðra villu í leiknum þegar þrjár og hálf mínúta er eftir af þriðja. Báðar villurnar hans eru á Magga Gunn þegar hann fer upp í þriggja stiga skot. Marvin var langt frá því að vera ánægður með þennan dóm. 56-63.
20:18 – Það er harka að færast í leikana. Menn liggja í góflinu hægri vinstri og olnbogaskotin farin að fljúga. Eru dómararnir að missa tökina á leiknum?
20:15 – 8-0 hjá Keflavík á fyrstu þremur mínútum seinni hálfleiks. Stjarnan komst ekki á blað fyrr en Keith Cothran skoraði eftir rúmlega þrjár mínútur.
20:12 – Seinni hálfleikur að hefjast. Stjarnan byrjar með boltan og Almar Guðbrandsson ver fyrstu tilraun Marvin Valdimarssonar útaf vellinum.
20:00 – Stigahæstur í liði Stjörnunnar í hálfleik var Keith Cothran með 16 stig en næstu menn voru Marvin Valdimarsson með 11 stig og Sigurjón Lárusson með 6 stig. Hjá Keflavík var Jerryd Cole með 13 stig en næstir voru Charles-Michael Parker með 11 stig og Valur Orri Valsson með 9 stig.
19:55 – Stjarnan tekur leikhlé þegar það eru 40 sekúndur eftir af fyrri hálfleik, 45-45. Sóknin þeirra gengur þó ekki uppp og Keflavík fékk seinasta skotið, það geigaði líka og því ennþá jafnt í hálfleik, 45-45.
19:50 – HALLó HALLÓ, Keith Cothran var að enda við að troða harkalega yfir Magnús nokkurn Gunnarsson, alley oop troðsla af bestu gerð. Þetta er ástæðan fyrir því að við mætum á völlinn
19:46 – Menn eru farnir að sýna úr hverju þeir eru gerðir. Keith Cothran emð 7 stig í röð hjá Stjörnunni og Maggi Gunn setti sín fyrstu stig. Það vantar ekki sóknamennina í þennan leik. 40-40 og fjórar mínútur eftir
19:44 – Jovan nældi sér í sína þriðju villu um leið og hann kom inná. Almar kominn í sama pakka hinu megin.
19:41 – Bekkurinn hjá Keflavík lætur vel í sér heyra þegar Alamar fær villu en bekkurinn öskar ruðningur. Undirritaður sá ekki hvort það var en það er gaman að sjá smá læti í úrslitakeppninni.
19:40 – Keflavík ennþá með frumkvæðið, Valur Orri sýnir skemmtilega takta og er stigahæstur sinna manna ásamt Charles- Michael Parker með 9 stig.
19:35 – Borgarskotið fræga er hluti af leiknum í Garðabæ, þau geiguðu þó bæði eftir fyrsta leikhluta. Sjáum til hvort menn séu betri eftir þriðja.
19:33 – Keflavík tók aftur frumvkæðið eftir leikhlé og áttu seinustu sóknina í fyrsta leikhluta þar sem Jerryd Cole skellti í þrist og gestirnir eru því þremur stigum yfir, 22-25 eftir einn leikhluta.
19:28 – Jovan kom inná í eina mínútu og 13 sekúndur og tókst að næla sér í tvær villur, hann fær því að setjast aftur á bekkinn.
19:26 – Leikhlé fyrir Keflavík þegar þrjár mínúturu eru eftir af fyrsta. Marvin Valdimarsson hefur skorað 8 seinustu stig Stjörnunnar og er óstöðvandi þessa stundina.
19:22 – Marvin Valdimarsson mættur, setti seinustu 4 stig Stjörnunnar og minnkar muninn niður í 4 stig, 12-16.
19:18 – Valur Orri valsson splæsti í tvo þrista á upphafsmínútunum og Keflavík búið að hirða ÖLL fráköstin í leiknum þegar staðan er 7-14.
19:16 – Keflavík byrjar leikinn af krafti, nýta færin sín og hirða sóknarfrákastið þegar skotin klikka. 3-9 eftir tvær mínútur.
19:12 – Byrjunarliðin eru klár – Stjarnan: Renato, Justin, Mavin, Keith og Fannar. Keflavík : Valur Orri, Charles-Michael, Jerryd, Magnús og Almar.
19:10 – Kjartan Atli Kjartansson, fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar og núverandi þjálfari FSU er kynnir í Ásgarði í kvöld. Verið er að kynna liðin til leiks og því styttist óðum í að leikurinn hefjist.




