HomeÚti í heimiEvrópaBayern tóku fyrsta leikinn

Bayern tóku fyrsta leikinn

Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlín töpuðu fyrsta leiknum gegn Bayern München, 102:94, í úrslitum þýska körfuboltans í kvöld. Martin lék vel í leiknum, skoraði 14 stig og gaf níu stoðsendingar á 25 mínútum, en frammistaða hans dugði ekki til sigurs á útivelli.

Bayern leiðir því einvígið þar sem þrjá sigra þarf til að hampa meistaratitlinum. Alba Berlín fær tækifæri til að jafna metin á sunnudaginn þegar liðin mætast á heimavelli Martins í Berlín.

Fréttir
- Auglýsing -