Barry University tryggði sig í gærkvöldi í 4 liða úrslit í SSC riðlinum í D2. Barry sigraði lið Florida Southern með 95 stigum gegn 79. Elvar Már Friðriksson bakvörður úr Njarðvík spilaði vel líkt og venjulega og hélt uppteknum hætti í stoðsendingum. Hann sendi 11 slíkar á félaga sína og bætti í það 7 stigum en eins og tölur leiksins gefa til kynna þurfti Elvar ekki mikið að skora, aðrir sáu um það.
Á laugardaginn nk. spila Barry svo í 4 liða úrslitum gegn liði Saint Leo í Daytona Beach.



