spot_img
HomeFréttirBaron Davis sameinar fólk yfir hátíðirnar

Baron Davis sameinar fólk yfir hátíðirnar

 

 

Verslunarmiðstöðin Mall of America í Minneapolis í Bandaríkjunum réð á dögunum svartan jólasvein í fyrsta skiptið. Það gerðu þeir í von um að sem flestir gætu hitt “sinn” eigin sveinka. Ekki voru allir á eitt sáttir með þetta framtak og þurfti Minneapolis Star Tribune, sem er blað á svæðinu að loka fyrir athugasemdir með frétt um málið sökum kynþáttafordóma.

 

 

Fyrrum NBA leikmanninum Baron Davis fannst þetta, líkt og fleirum, með öllu ótækt og sagðist harma það hvað fáfrótt fólk gæti búið til mikla neikvæðni í kringum hluti sem ættu að sameina fólk, en líkt og Mall of America er kappinn einnig að reyna að koma svörtum jólasveinum á kortið.

 

Davis, sem rekur fyrirtækið The Black Santa Company í Hollywood í Los Angeles segir að það hreinlega verði að vera til svartir jólasveinar svo að sem flestir finni einhvern fyrir sig. Enn frekar segist hann hafa farið í mikla rannsóknarvinnu áður en að hann fór af stað með þetta verkefni og að hann hafi komist að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt væri að geta sýnt jákvæðar svartar manngerðir og að svarti jólasveinninn væri sú fyrsta sem að fyrirtækið fór í að skapa.

 

Hægt er að kynna sér verkefnið hér og versla ýmsan varning s.s. peysur, boli, barnaföt, jólaskraut, gjafapappír og fleira.

Fréttir
- Auglýsing -