KLM verðlaunagripir hafa gefið nýjan Íslandsmeistarabikar fyrir Íslandsmótið í Iceland Express deild kvenna og því verður sá sem bitist hefur verið um síðustu ár lagður til hliðar og vistaður hjá Körfuknattleikssambandi Íslands.
Nýji bikarinn á möguleika á fjórum heimilum þetta árið, í Hveragerði, Keflavík, vesturbæ Reykjavíkur eða í Njarðvík en undanúrslit deildarinnar hefjast í dag kl. 16:00.
Undanfarin ár hefur Körfuknattleikssamband Íslands notast við verðlaunagripi frá KLM verðlaunagripum en fyrirtækið ákvað að gefa KKÍ nýja bikarinn í tilefni af 50 ára afmæli sambandins.





