16:38
{mosimage}
Bárður Eyþórsson, Þjálfari Fjölnis
Bárður Eyþórsson þjálfari Fjölnis var að vonum mjög ánægður með leik sinna manna en sagði úrslitin ekkert framar vonum. “ Nei nei, við bara spiluðum vel og það var kraftur í þessu. Bara rosalega gaman”. Fjölnisliðið hefur gengið í gegnum miklar breytingar frá því á seinasta ári. Undirstaða liðsins eru ungir strákar sem hafa margri hverjir spilað með ungmennalandsliðum landsins.
Einnig hafa Sverrir Kári Karlsson og Magnús Pálsson tekið fram skóna á ný. “Þetta er bara annað lið. Okkur vantar nátturulega ennþá inní þetta, kaninn okkar er meiddur og tveir aðrir stórir menn þannig að það breytti miklu en aðrir vógu þetta vel upp. En þetta voru liðin sem spiluðu í dag og við erum mjög ánægðir með það sem gerðist í dag, hörku varnarleikur.”
Með þetta ungt lið hljóta menn að vera bjartsýnir á framhaldið í Grafarvoginum. “ Já, við erum að byggja upp. Við höfum ekki sett okkur nein markmið. Við erum bara að byggja upp lið og andinn er góður. Það er margt sem er hægt að gera með svona jákvæðan og góðan hóp. Engar yfirlýsingar”.
Gísli Ólafsson





