spot_img
HomeÚti í heimiEuroleagueBarcelona unnu Martin Hermannsson og félaga í Valencia

Barcelona unnu Martin Hermannsson og félaga í Valencia

Mrtin Hermnnsson og félagar hans í Vlencia máttu þola tap í spennandi leik fyrir Barcelona í þriðju umferð EuroLeague í gærkvöldi, 71-66.

Var þetta fyrsta tap Valencia, en áður höfðu þeir unnið lið LDLC Asvel og Real Madrid.

Atkvæðamestur fyrir Valencia í leiknum var Bojan Dubljevic með 13 stig og 8 fráköst. Fyrir Barcelona var það Rolands Smits sem dróg vagninn með 15 stigum og 7 fráköstum.

Martin lék 14 mínútur í leiknum og hafði frekar hægt um sig tölfræðilega, skilaði einu stigi, frákasti og tveimur stoðsendingum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -