Barcelona er Spánarmeistari í ACB deildinni eftir 73-69 sigur á erkifjendum sínum í Real Madrid eftir oddaviðureign. Erazem Lorbek var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar í ACB deildinni.
Fran Vazques var stigahæstur í oddaleiknum með 16 stig og 8 fráköst og Pete Mickeal bætti við 17 stigum og 9 fráköstum. Hjá Real Madrid var Jaycee Carroll með 16 stig og 3 fráköst.
Fimm manna úrvalslið með nokkuð frábrugðnum áherslum sem við eigum að þekkja hérlendis var valið að lokinni úrslitarimmunni í ACB deildinni. Liðið skipa Juan Carlos Navarroa fyrir leiðtogahæfileika, framlag var Pete Mickeal, hugarfar Erazem Lorbek, örlæti Sergio Rodriguez Real Madrid og ef spænskan er ekki að svíkja okkur í Google translate fékk Felipe Reyes, Real Madrid, sæti í liðinu fyrir ,,delivery." Hvað frammistöðu sé verið að verðlauna þarna látum við ykkur um að dæma.