spot_img
HomeFréttirBarcelona búið að jafna

Barcelona búið að jafna

Blása verður til oddaleiks í úrslitum ACB deildarinnar á Spáni en Real Madrid og Barcelona mættust í kvöld í sínum fjórða úrslitaleik þar sem Börsungum tókst að jafna einvígið í 2-2 og knýja fram oddaleik með 75-81 sigri. Liðin mættust á heimavelli Real Madrid en sjálfur oddaleikurinn fer fram á heimavelli Barcelona þann 16. júní næstkomandi.
Erazem Lorbek fór fyrir Barcelona í kvöld með 24 stig og 5 fráköst og CJ Wallace bætti við 16 stigum og 6 fráköstum. Hjá Real Madrid var Nikola Mirotic með 14 stig og 3 fráköst og Bandaríkjamaðurinn Kyle Singler var með 11 stig og 5 fráköst.
 
Oddaleikurinn ætti að verða mögnuð skemmtun milli þessara stórvelda en hann hefst kl. 19:00 á Spáni eða kl. 17:00 að íslenskum tíma.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -