spot_img
HomeFréttirBaráttusigur hjá Val í Röstinni

Baráttusigur hjá Val í Röstinni

Það var boðið upp á hörkuleik í Röstinni í kvöld er Grindavík og Valur mættust en liðin voru jöfn að stigum í 4.-5. sæti deildarinnar fyrir leik kvöldsins. Grindavík byrjaði betur en Valsstelpur voru ekki lengi að koma sér inn í leikinn og eftir fyrsta leikhluta var staðan 23-20 fyrir Grindavík. Sama jafnræði var með liðunum í 2. leikhluta og staðan í hálfleik var 44 – 42 fyrir heimastúlkum. Stigahæstar í hálfleik voru Rachel Tecca með 16 stig (6 fráköst) og Petrúnella Skúladóttir með 9 stig (8 fráköst) hjá Grindavík en hjá Val var Joanna Harden með 17 stig og Fanney Lind Guðmundsdóttir með 6 stig.
 

Sama spennan var í leiknum í 3.leikhluta en liðin skiptu um forustu 9 sinnum í þessum leikhluta. Í lok þriðja leikhluta náðu Valsstelpur góðri syrpu og þegar leikhlutanum lauk var staðan 68-62 fyrir Val og var mikil stemning með Valsliðinu. Þrátt fyrir mikla baráttu hjá Grindavíkurstelpum náðu þær ekki að vinna upp þennan mun og jafna leikinn aftur og svo fór að Valur vann með 8 stiga mun, 81-89. Munaði þar miklu um að meðan Valur hélt áfram að spila sinn leik þá virkaði eins og Grindavíkurstelpur væru stressaðar og fóru að þröngva boltanum of mikið inn í teig til Rachel í staðinn fyrir að láta boltann ganga vel líkt og þær höfðu gert fyrstu þrjá leikhlutana. Góður og verðskuldaður sigur hjá Valsstúlkum sem eru núna einar í 4. sæti deildarinnar.

 

Hjá Val var Joanna Harden með 32 stig, 8 fráköst og 7 stoðsendingar, Fanney Lind Guðmundsdóttir með 16 stig og 5 fráköst,  Kristrún Sigurjónsdóttir með 11 stig og 5 stoðsendingar og Ragnheiður Benónísdóttir með 8 stig og 8 fráköst.

 

Hjá Grindavík var Rachel Tecca með 38 stig og 14 fráköst, Petrúnella Skúladóttir með 14 stig, 12 fráköst og 5 stoðsendingar, Guðlaug Björt Júlíusdóttir með 7 stig og Ingibjörg Jakobsdóttir var með 5 stig og 11 stoðsendingar.
 
 
Frétt og mynd / Bryndís Gunnlaugs & Davíð Eldur
 
 
 

Sverrir – Grindavík:

 

Ágúst – Valur:

 
Fréttir
- Auglýsing -