Eljusemi Keflvíkinga var lykillinn að sigri liðsins í Ásgarði í kvöld. Lokatölur leiksins voru 92-102 Keflavík í vil en Stjörnumenn náðu sterku 11-0 áhlaupi á lokasprettinum en Keflvíkingar stóðust prófið og unnu sinn þriðja deildarsigur í röð. Thomas Sanders heldur áfram að hrífa stuðningsmenn Keflavíkur og í kvöld setti kappinn 32 stig og tók 4 fráköst. Mikill vinnuþjarkur hér á ferð sem ásamt Herði Axeli Vilhjálmssyni skipar eitt grimmasta bakvarðapar deildarinnar.
Lazar Trifunovic var mættur í búning í liði Keflavíkur en kom ekki við sögu í leiknum. Gunnar Einarsson hafði þó frumkvæðið fyrir gestina og opnaði leikinn með þriggja stiga körfu.
Keflvíkingar pössuðu vel upp á að Justin Shouse kæmi ekki upp völlinn með boltann og vildu hafa hann sem mest úr höndum leikstjórnandans snjalla. Staðan var 12-12 eftir fyrstu fimm mínútur leiksins og dómarar kvöldsins þegar orðnir þreyttir á tuði í Marvini Valdimarssyni sem fékk strax tvær áminningar og varð því að halda sig á mottunni.
Kjartan Atli Kjartansson kom svellkaldur af Stjörnubekknum og setti þrist í fyrsta skoti og kom heimamönnum í 19-14 sem með sterku 12-0 áhlaupi leiddu síðar 26-14 og Guðjón tók leikhlé fyrir Keflavík. Þessi stutta pása virkaði sem skildi því Keflvíkingar gerðu þrjú stig án þess að Stjarnan næði að skora og staðan því 26-17 eftir 10 mínútna leik og Jovan Zdravevski kominn með 13 stig í liði Stjörnunnar.
Heimamenn í Garðabæ sátu enn við stýrið í upphafi annars leikhluta en þegar líða tók á hrökk Magnús Þór Gunnarsson í gang í Keflavíkurliðinu og sáldraði niður þremur þristum á skömmum tíma og sá síðasti minnkaði muninn í 35-31.
Gestirnir voru komnir í svæðisvörn í öðrum leikhluta og náðu í stutta stund að komast yfir 35-36 en Justin Shouse klíndi þá niður þrist hinum megin og 38-36 Stjörnunni í vil. Keflvíkingar voru þó grimmari á lokasprettinum og leiddu 41-42 í hálfleik. Jovan Zdravevski var kominn með 21 stig hjá Stjörnunni í hálfleik en Thomas Sanders var með 13 í liði Keflavíkur og gestirnir unnu annan leikhluta 25-15.
Keflvíkingar voru með læti strax í upphafi síðari hálfleiks, Thomas Sanders stal boltanum og tróð og staðan 45-55 gestunum í vil. Heimamenn voguðu sér ekki í teig Keflavíkur fyrstu fimm mínúturnar í þriðja leikhluta en þegar þeir svo loksins komu boltanum þangað og í fangið á Renato Lindmets þá skoraði hann og fékk villu að auki, stórlega vannýttur möguleiki í kvöld af hálfu Stjörnunnar. Renato gerði reyndar 5 Stjörnustig í röð og minnkaði muninn í 55-57 en þá tóku gestirnir á rás.
Magnús Þór Gunnarsson var ekki fyrr kominn af bekknum þegar hann setti þrist og annan til skömmu síðar. Magnús átti svo stoðsendinguna á Gunnar Stefánsson sem lokaði sterkum leikhluta fyrir gestina með þriggja stiga körfu og Keflvíkingar leiddu 61-74 fyrir lokasprettinn.
Allt útlit var fyrir að gestirnir hefðu gert út um leikinn snemma í fjórða leikhluta, Þröstur Leó Jóhannsson sem átti flottan leik með Keflavík í kvöld setti niður þrist og jók forskot gestanna í 62-79. Heimamenn í Stjörnunni vildu þó ekki láta niðurlægja sig allan lokafjórðunginn og tóku loks á rás þó þeir hefðu alls ekki verið líklegir til þess. Undirritaður fékk ekki betur séð en að Renato Lindmets hefði fengið sig fullsaddan af slyttuhættinum og átti stóran þátt í að berja Stjörnuna áfram.
Þegar rétt rúmar tvær mínútur voru til leiksloka minnkaði Justin Shouse muninn í 85-92 og allt galopið í 11-0 áhlaupi heimamanna. Í næstu Keflavíkursókn var endi bundinn á áhlaup Stjörnunnar. Ísafjarðartröllið Sigurður G. Þorsteinsson var þá búinn að tjalda í Stjörnuteignum, fékk boltann, skoraði og fékk villu að auki. Klárt mál að þarna átti að dæma sóknarbrot fyrir þriggja sekúndna veru miðherjans í teignum. Engan veginn var þetta atriði sem réði úrslitum leiksins, það var baráttan í Keflavíkurliðinu, en þetta kom á afar viðkvæmum tímapunkti fyrir heimamenn.
Keflvíkingar létu stöðuna sér ekki úr greipum renna og kláruðu dæmið í Ásgarði 92-102 og mátti Justin Shouse fara í sturtu þegar 17 sekúndur voru til leiksloka er hann fékk dæmda á sig sína aðra óíþróttamannslegu villu í kvöld en slíkt kallar á tafarlaust brotthvarf úr húsi samkvæmt regluverkinu.
Keflvíkingar hafa nú unnið þrjá deildarleiki í röð og eru í 3. sæti deildarinnar með 20 stig en hafa betur innbyrðis gegn KR sem skelltu Haukum í kvöld og eru í 4. sæti, einnig með 20 stig. Stjarnan er í 5. sæti deildarinnar með 14 stig.
Heildarskor:
Stjarnan: Jovan Zdravevski 24/6 fráköst, Renato Lindmets 23/9 fráköst, Justin Shouse 22/5 fráköst/12 stoðsendingar, Kjartan Atli Kjartansson 9/4 fráköst, Fannar Freyr Helgason 8/7 fráköst, Marvin Valdimarsson 5/7 fráköst, Daníel G. Guðmundsson 1, Guðjón Lárusson 0, Sigurbjörn Ottó Björnsson 0, Ólafur Aron Ingvason 0, Dagur Kár Jónsson 0, Tómas Þórður Hilmarsson 0.
Keflavík: Thomas Sanders 32/4 fráköst/3 varin skot, Magnús Þór Gunnarsson 26, Hörður Axel Vilhjálmsson 16/9 fráköst/7 stoðsendingar/5 stolnir, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 9/7 fráköst/3 varin skot, Þröstur Leó Jóhannsson 8/7 fráköst, Halldór Örn Halldórsson 3/4 fráköst, Gunnar Einarsson 3/5 stoðsendingar, Gunnar H. Stefánsson 3, Jón Nordal Hafsteinsson 2, Lazar Trifunovic 0, Ragnar Gerald Albertsson 0, Almar Stefán Guðbrandsson 0.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Einar Þór Skarphéðinsson
Punktar:
-Allt í lamasessi, 15 mínútum fyrir leik var sjoppan loksins klár í Ásgarði og nokkrum mínútum síðar byrjaði fólk að streyma inn. Allir á leið heiman að úr sófanum, sælir á svip að því er virtist eftir öruggan sigur Íslendinga gegn Norðmönnum á HM í handbolta. Upphitun leikmanna var samt heldur tómleg þar sem áhorfendur týndust ekki inn í salinn fyrr en um 10 mínútum fyrir leik.
-Næsti deildarleikur Keflavíkur er gegn Hamri á heimavelli.
-Næsti deildarleikur Stjörnunanr er gegn Njarðvík á útivelli
-Magnús Þór Gunnarsson lék fimm leiki með Njarðvíkingum á þessari leiktíð og skoraði mest í einum leik 9 stig. Það var gegn Keflvíkingum 22. nóvember og var fyrsti leikur hans á Íslandi eftir að hann kom heim frá Aabyhoj í Danmörku. Hann lauk leik í kvöld með 26 stig!
-Úr stúkunni: ,,Fara að versla meira inn, fleiri útlendinga!” Heyrðist stuðningsmaður Keflavíkur hrópa úr stúkunni. – ,,Segja hverjir!” var svarað að bragði í Stjörnustúkunni. Bæði lið tefla fram tveimur erlendum leikmönnum. Skemmtilegt orðagjálfur á pöllunum, það er víst barist þar eins og á parketinu.
Ljósmynd/ Tomasz Kolodziejski – [email protected] – Jón N. Hafsteinsson sækir að körfu Garðbæinga í Ásgarði í kvöld.
Umfjöllun: Jón Björn Ólafsson – [email protected]




