Þór Þorlákshöfn landaði mikilvægum útisigri í Bónusdeild karla í kvöld eftir háspennusigur gegn Njarðvík 92-93 í IceMar-Höllinni.
Allt var á suðupunkti í lokin og Njarðvíkingar stálu boltanum og fengu sniðskot fyrir sigrinum sem dansaði af hringnum. Gestirnir úr Þorláksöfn því búnir að finna sinn þriðja sigur í deildinni og þar með jafna nýliða ÍA að stigum.
Karfan spjallaði við Lárus Jónsson þjálfara Þórs eftir leik í IceMar höllinni.



