Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur sent frá sér opinbera yfirlýsingu þar sem deildin fordæmir harðlega atvik sem átti sér stað á fyrsta leik liðsins gegn Tindastóli.
Tilefnið er að áhorfandi kastaði dós í átt að stuðningsfólki gestaliðsins, en félagið segir slíka hegðun vera í algjörri andstöðu við gildi sín og öryggi gesta í HS Orku höllinni. Í yfirlýsingunni er beðist einlægrar afsökunar á atvikinu og því fylgt eftir að gestir eigi ávallt að geta treyst því að styðja sína menn í virðingarfullu umhverfi.
Stjórn deildarinnar hefur þegar brugðist við málinu og hefur viðkomandi áhorfandi verið settur í bann á næsta heimaleik liðsins. Grindvíkingar leggja áherslu á að þeir vilji halda úti kraftmiklum og skemmtilegum heimavelli, en undirstrika jafnframt að góð framkoma sé forsenda þess að allir geti notið leiksins. Er því beint til stuðningsmanna að sýna prúðmennsku og standa vörð um það jákvæða andrúmsloft sem félagið vill kenna sig við.



