KR hefur samið við bandaríska bakvörðinn Dazia Lawrence um að leika með meistaraflokki kvenna á komandi tímabili.
Lawrence er 173 sentímetrar á hæð og lék síðast með Chartres í efstu deild Frakklands þar sem hún skilaði 7,2 stigum, 3,1 frákasti og 1,8 stoðsendingum að meðaltali í leik. Hún býr yfir mikilli reynslu, en hún spilaði einnig með Peja 03 í EuroCup þar sem hún var með 18 stig að meðaltali og lék áður með háskólanum í Kentucky í Bandaríkjunum. Þá á hún að baki leiki með U23 ára landsliði Bandaríkjanna á heimsmeistaramótinu í 3X3 körfubolta.
Daníel Andri Halldórsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá KR, lofar nýja leikmanninn í hástert og segir hana búa yfir svakalegu vopnabúri sóknarmegin sem eigi eftir að auka fjölbreytileika liðsins umtalsvert í vetur.



