Einn leikur fór fram í úrslitum Bónus deildar karla í kvöld.
Með sigri hefði Tindastóll getað hampað Íslandsmeistaratitlinum, en Stjarnan gerði sér lítið fyrir og vann og mun því koma til oddaleiks um hvort liðið fer með sigur af hólmi.
Oddaleikurinn mun fara fram komandi miðvikudag 21. maí í Síkinu á Sauðárkróki.
Karfan spjallaði við Baldur Þór Ragnarsson þjálfara Stjörnunnar eftir leik í Umhyggjuhöllinni.