Í kvöld hófst 13. umferð Bónusdeildar karla, fyrirfram var mesta eftirvæntingin á leik Vals og Stjörnunnar. Liðin í öðru og fimmta sæti deildarinnar og þau lið, ásamt Grindavík, verið hvað heitustu í síðustu umferðum. Valur búinn að vinna sjö leiki í röð og Stjarnan fjóra.
Leikurinn varð í raun aldrei spennandi, Stjarnan kláraði leikinn í fyrri hálfleik, Valur sýndi karakter í lokinn og náðu að bjarga andlitinu, 102-105 fyrir gestunum.
Karfan spjallaði við Baldur Ragnarsson þjálfara Stjörnunnar eftir leik í N1 höllinni.



