Hvað ætli leikmenn setji á fóninn rétt fyrir leik?
Við fengum leikmann Þórs úr Þorlákshöfn, Baldur Þór Ragnarsson, til þess að ljóstra upp fyrir okkur hvaða lög það væru sem hlustað væri á til þess að koma sér í gírinn.
Þór mætir liði FSU í Iðu í 4. umferð Dominos deild karla kl.19:15.
Áður Höfðum við fengið lista frá:
Baldur:
"Er ekkert mikið í því að hlusta á tónlist til þess að peppa mig upp fyrir leiki. Er peppaður að eðlisfari og þarf ekkert sérstakt til að keyra mig í gang. En sú tónlist sem ég fýla mest er einfaldega harðkjarna rokk og hér fyrir neðan er nokkur lög sem gera allt vitlaust!!"
Cradle of filth – Nymphétamine
-Eðalstöff sem klikkar ekki ef þú ert alvöru rokkari.
Skálmöld – Baldur
-Best lagið með Skálmöld.
Dimma – Þungur Kross
-Þetta band er hrikalega flott.
Slipknot – Spit it Out
-Eitt gamalt og gott með Slipknot verður að vera á lista.
Dimmuborgir – Gateways
-Norskur harðkjarni sem King Kunta er hræddur við.