Ísland hóf leik á lokamóti EuroBasket í gær með leik gegn Ísrael í Katowice í Póllandi. Þrátt fyrir góða frammistöðu framan af leik náði íslenska liðið ekki í sigur, en þeir voru lengst af á milli 10 og 15 stiga undir í seinni hálfleiknum.
Það er stutt á milli á móti sem þessu. Í dag fengu öll liðin í Katowice frídag áður en þau leika svo næst á morgun, en þá mun Ísland mæta Belgíu kl. 12:00 að íslenskum tíma.
Karfan kom við á blaðamannafundi í dag og ræddi við Baldur Þór Ragnarsson um hvað hefði betur mátt fara í leiknum gegn Ísrael, hverju mætti búast við af belgíska liðinu á morgun og hvaða frammistöðu hann væri að búast við af lykilmanni Íslands Martin Hermannssyni á morgun, en hann náði lítið að setja sitt góða mark á leik gærdagsins.



