Baldur Ólafsson er hæðsti lögreglumaður á Íslandi og jafnvel þó víða væri leitað. Baldur spilaði með KR og hampaði með þeim Íslandsmeistaratitil í sínum síðasta leik. En Baldur þurfti að hætta iðkun boltans vegna meiðsla. Það sem kannski færri vita er að Baldur hefur síðan landað heimsmeistaratitli í sportinu með Lögreglu og Slökkviliði Íslands. Baldur spjallaði við Karfan.is um landsliðið og komandi leik í kvöld gegn Eistum.
"Mér lýst mjög vel á þetta lið. Hef saknað landsliðsins og svo er ekki verra að fá svona flott mót og alvöru leiki heima og allir atvinnumennirnir okkar með."
Ekki gengið sem skildi hér heima fyrir. Hverju um kenna þar?
Ég held við getum ekki kennt neinu sérstöku um. Serbía, Montenegro og Ísrael eru vissulega á öðru "leveli" En þetta liggur allt í vörninni og einbeitingu ef við eigum að stríða þessu þjóðum. Þessir leikmenn eru það góðir að þá má ekki gefa þeim neitt því þá er refsað og það hefur verið vandamálið. Við höfum náð að spila ágætlega en svo gert 1-2 mistök og þeir refsað með 3ja stiga skotum.Ég væri alveg til í að sjá okkur fara aðeins dýpra í bekkinn og kannski hafa þá menn aðeins ferskari. "
Hvar liggja möguleikar okkar á sigri gegn Eistum á morgun?
"Nú þekki ég ekki þeirra leik en þeir virðast eitthvað geta í þessari íþrótt. Við verðum bara að spila okkar leik. Þetta hefst allt með vörninni og fráköstum, ég vil sjá flott BigManCamp á morgun frá okkar mönnum."
Frá því þú lagðir skóna á hilluna hefuru unnið til heimsmeistaratitils. Kítlar ekkert að rífa fram skóna og fá að taka á þessum stóru strákum sem eru að koma hingað til landsins?
"Mig dauðlangar að geta spilað körfubolta en ég bara get það ekki. Hnénliðurinn er það slitinn að ekkert nema hugsanlega "Kobe" aðgerð gæti lagað þetta til en hversu mikið veit engin og þá kostar sú aðgerð eflaust eitthvað. Ég ég spila leikinn í huganum og fer sveittur heim úr stúkunni hvort sem það er í DHL eða í Höllinni."
Verður Baldur Ólafsson á leiknum á morgun ?
"Ég tek venslu innlit öðru hvoru megin við hálfleik. Þetta fer allt eftir verkefnastöðu á vaktinni." sagði löggæslumaðurinn hái í samtali við Karfan.is
Mynd: Hér er um lögreglumál að ræða. Baldur "misnotar" Igor Beljanski hér um árið