Shanea Baker-Brice fór nú í vikunni í ómskoðun og myndirnar úr því leiddu í ljós að enga skemmdir eða eins og óttast var með rifin liðþófa var að sjá. Aðeins er um bólgur að ræða og því mun hún halda sínu striki með Njarðvík áfram. Sverrir Þór Sverrisson þjálfari Njarðvíkur staðfesti þó að hún mun hvíla leikinn í kvöld Fjölni.
"Það verður bara að segjast að við förum í þennan leik sem "underdogs". Þær eru komnar með hörkulið , 3 útlendinga og það er nokkuð ljóst að ef þær hefðu hafið leiktíðina með þenna mannskap væru þær ekki eins neðarlega og raun ber vitni. " sagði Sverrir í samtali en staðfesti það einnig að lið hans færi að sjálfsögðu í leikinn til þess að vinna hann enda er enn möguleiki á að ná fyrsta sætinu eftir að Keflavík fór illa að ráði sínu í gærkvöld.



