spot_img
HomeBikarkeppniBæði lið munu leita til sinna styrkleika snemma í leiknum

Bæði lið munu leita til sinna styrkleika snemma í leiknum

Úrslitaleikir VÍS bikarkeppninnar verða leiknir í Smáranum í dag laugardag. Fyrri leikurinn er leikur KR og Stjörnunnar í meistaraflokki karla, en sá seinni er á milli Keflavíkur og Grindavíkur í meistaraflokki kvenna.

Karfan fékk nokkra málsmetandi aðila til þess að spá fyrir um leikina tvo. Daníel Andri Halldórsson þjálfari KR í Bónus deild kvenna og aðstoðarþjálfari íslenska landsliðssins spáir KR og Keflavík titlunum í dag.

Hérna eru allir leikir VÍS bikarvikunnar

Úrslitaleikur karla – KR gegn Stjörnunni

Hvernig fer leikurinn? 96-91 fyrir KR.

Hvernig á hann eftir að spilast?

Leikurinn mun fara hratt af stað með miklum látum sóknarlega hjá báðum liðum.  Það hægist svo á stigaskori í seinni hálfleik en KR finna taktinn á lokamínútum með Toms og Tóta í fararbroddi.

Úrslitaleikur kvenna – Grindavík gegn Keflavík

Hvernig fer leikurinn? 78-85

Hvernig á hann eftir að spilast?

Bæði lið munu leita til sinna styrkleika snemma í leiknum þar sem Grindvíkingar munu reyna að böðlast á minna liði Keflavíkur inni í teig. Keflavíkurkonur munu keyra upp hraðann í leiknum. Lykilleikmenn Grindavíkur lenda í villuvandræðum og Keflavík sigla þessu heim.

Fréttir
- Auglýsing -