spot_img
HomeFréttirB-deild kvenna hefst í Smárnaum í dag

B-deild kvenna hefst í Smárnaum í dag

KKÍ hefur sett á fót B-deild kvenna í körfuknattleik. Fimm lið eru skráð til leiks en það eru Breiðablik, Grindavík, Höttur/Sindri, Keflavík og Snæfell.
 
 
Fyrirkomulagið er fimm liða deild með einni umferð sem gerir fjóra leiki í heild sinni á mótinu á lið. Í dag verða spilaðir tveir leikir á lið og svo verða hinir tveir leikirnir spilaðir 14. mars og tilkynnist staðsetning á þeim leikjum síðar. Tvö efstu liðin fara í úrslitaleikinn sem verður í Kennaraháskólanum 18. apríl.
 
Mótið um helgina fer fram í Smáranum í umsjón Breiðabliks.
 
Dagskráin þessa helgi:
Kl. 12.30 Breiðablik – Keflavík
Kl. 13.45 Grindavík – Snæfell
Kl. 15.00 Höttur – Keflavík
Kl. 16.15 Breiðablik – Snæfell
Kl. 17.30 Grindavík – Höttur
 
Reglur:
Lengd leikja verður 4×8 mínútur. Allar aðrar leikreglur gilda.
Tíu mínútuhæstu að meðaltali leikmenn meistaraflokks eru ólöglegir. Er miðað við spilatíma á Íslandsmóti.
 
Frétt af vef www.kki.is
  
Fréttir
- Auglýsing -