HomeNeðri deildir1. deild karlaAxel og Baldur áfram hjá Þór Akureyri

Axel og Baldur áfram hjá Þór Akureyri

Góð tíðindi eru úr Þorpinu en Þór hefur samið við þá Axel Arnarsson og Baldur Örn Jóhannesson fyrir komandi leiktíð.

Axel Arnarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið og verður áfram hluti af Þórsliðinu næstu tvö tímabil í þeirri uppbyggingu sem fram undan er.

Baldur Örn Jóhannesson snýr aftur á parketið og verður í leikmannahópi Þórs á komandi tímabili. Samhliða því að leika með liðinu mun hann einnig gegna hlutverki aðstoðarþjálfara og miðla af reynslu sinni bæði innan vallar sem utan.

Fréttir
- Auglýsing -