Aukasendingin mætir aftur til leiks þar sem ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur fékk góðkunningja þáttarins Jónfrí í heimsókn. Í þættinum er kafað djúpt í nýjustu vendingar í úrslitakeppni Bónus deildarinnar, þar sem skipbrot KR í Garðabæ er tekið fyrir og rýnt í hvað fór úrskeiðis hjá Vesturbæingum gegn Stjörnunni. Þá er farið yfir hvernig Tindastóll kláraði einvígið gegn ÍR og sendi Breiðhyltinga í snemmbúið sumarfrí með sannfærandi hætti.
Seiðkarlinn Kári Jónsson fær verðskuldað pláss í umræðunni eftir ótrúlega sigurkörfu sína fyrir Val, sem minnti á hvers vegna hann er besti leikmaður deildarinnar þegar mikið liggur við. Að lokum er staðan tekin á Njarðvík, en þríeykið veltir því fyrir sér hvort tímabilið sé hreinlega búið hjá þeim miðað við hvernig leikir hafa spilast að undanförnu.
Þá er einnig farið yfir nokkur af skemmtilegustu augnablikum úrslitakeppninnar til þessa.
Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.




