HomeBónus deildinBónus deild karlaAukasendingin: Þungur róður Íslands, ungt blóð í Bónusdeildinni og erfiðasta leikjaplanið

Aukasendingin: Þungur róður Íslands, ungt blóð í Bónusdeildinni og erfiðasta leikjaplanið

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er mættur í loftið þar sem farið er yfir allt það helsta í íslenskum körfubolta. Rýnt er í stórleiki karlalandsliðsins í undankeppni HM sem fram fóru á dögunum gegn Serbíu og Tyrklandi.

Aðaláhersla þáttarins liggur þó í Bónusdeild karla. Rýnt í hvaða lið standa frammi fyrir erfiðustu byrjuninni í fyrstu umferðunum og tekin góð umræða um efnilega, unga leikmenn sem búast má við að fái tækifæri á gólfinu í vetur.

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Fréttir
- Auglýsing -