HomeBónus deildinBónus deild karlaAukasendingin: Óstöðvandi Stólar, villusæknir Stjörnumenn og og hin geggjaða Dinkins

Aukasendingin: Óstöðvandi Stólar, villusæknir Stjörnumenn og og hin geggjaða Dinkins

Aukasendingin mætir aftur til leiks þar sem Davíð fær góðkunningjana Árna ,,Striker” Jó og Jónfrí í heimsókn. 

Farið er yfir sviðna jörð í átta liða úrslitum Bónus deildar karla þar sem rætt er um hve villusækið lið Stjörnunnar er og af hverju Tindastóll virkar líklegasta liðið til stórræða þessa stundina. Spennan í kvennaboltanum er sömuleiðis á borðinu, sérstaklega rosalegur endir á leik Njarðvíkur og Tindastóls þar sem Brittany Dinkins sýndi enn og aftur að hún er hreinlega geggjuð á vellinum. 

Þá velur þríeykið fimm bestu íslensku og fimm bestu erlendu leikmenn úrslitakeppninnar hingað til á tveimur ólíkum listum. Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar.

Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

Fréttir
- Auglýsing -