spot_img
HomeBónusdeildinBónusdeild karlaAukasendingin: Kraftröðun fyrir Dominos deild karla

Aukasendingin: Kraftröðun fyrir Dominos deild karla

Dominos deild karla mun rúlla af stað þann 1. október með heilli umferð. Þar mun Tindastóll taka á móti ÍR í Síkinu, Valur og Stjarnan mætast í Origo Höllinni, Grindavík heimsækir nýliða Hattar á Egilsstaði, Þór Akureyri fær Keflavík í heimsókn, Haukar heimsækja Þór í Þorlákshöfn og KR fær Njarðvík í heimsókn.

Mikið hefur verið í gangi á leikmannamarkað sumarsins, en hér er hægt að skoða hvaða leikmenn hafa farið frá og komið til liðanna. Í síðustu upptöku af Aukasendingunni var kynnt kraftröðun fyrir deildina, það er hversu sterk liðin líta út á blaði í dag, sem er þó ekki spá fyrir tímabilið. Eiginleg spá Körfunnar verður tilkynnt síðar.

Hér fyrir neðan má sjá hvernig styrkur liðanna er metinn á þessum tímapunkti, en hægt er að hlusta á Aukasendinguna hér enn neðar fyrir greinagóðan rökstuðning fyrir hvert sæti/lið fyrir sig.

1Keflavík
2Tindastóll
3Stjarnan
4Valur
5KR
6ÍR
7Grindavík
8Njarðvík
9Haukar
10Höttur
11Þór
12Þór Ak

Fréttir
- Auglýsing -