Nýjasta Aukasendingin er nú komin út og þar er rætt um margt fleira stiklað er á hér, en brennidepillinn er að sjálfsögðu hin gríðarlega spenna í undanúrslitum Bónus deildar karla.
Gestir þáttarins að þessu sinni eru Strikerinn Árni Jó og Jónfrí, sem fara yfir það hvernig Stjarnan hefur náð 0-2 forystu gegn Tindastóli og jafnræðið í einvígi Vals og Grindavíkur þar sem staðan er 1-1. Rýnt er í viðbrögð þjálfaranna og hitann á Bónus spjallinu og að sjálfsögðu skrefadóminn.
Auk þess að kryfja leikina sjálfa fara þeir Árni og Jónfrí víðar og ræða sitthvað sem tengist körfuboltasamfélaginu á óvæntan hátt. Teknar eru fyrir stóru fréttirnar úr Vesturbænum þar sem KR hefur gengið frá samningum við þá Linards og Jakob.
Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.






