Aukasendingin fékk Strikerinn Árna Jó og Jónfrí í kaffi til að fara yfir fréttir vikunnar, síðustu umferð í Bónus deild karla, bestu evrópsku leikmenn deildarinnar, hvernig úrslitakeppnin er að raðast upp og hvaða leikmenn hefðu mátt fara í frí til Egyptalands með Dwayne Lautier í landsleikjahléinu.
Þá er einnig til umræðu seinni leikur íslenska kvennalandsliðsins í öðrum glugga undankeppni EuroBasket 2027, en þær mæta Portúgal kl. 19:30 í Ólafssal þriðjudag 17. mars.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.





