Charlie Villanueva verður ekki í leikmannahópi Dóminíska Lýðveldisins sem tekur þátt í lokamóti (FIBA Olympic Qualifying Tournament) sem sker úr um hvaða lið komist á Ólympíuleikana í London. Að sögn John Calipari, landsliðsþjálfara Dóminíska Lýðveldisins, er Villanueva í afleitu formi.
Fregnir fóru að berast af því að Villanueva, sem er leikmaður Detroit Pistons, væri ekki að æfa með landsliðinu og að lokum var Calipari fenginn til þess að greina frá áæstæðunni.
,,Charlie var ekki í góðu formi þegar við skoðuðum hann, of þungur og því miður gátum við ekki notað hann. Á síðasta ári stóð hann sig vel en þá var yfirvigtin hans einnig vandamál. NBA leikmaður á skilið virðingu og hennar vegna höfum við ákveðið að velja hann ekki í hópinn. Sjálfur naut ég þess að þjálfa hann enda frábær leikmaður," sagði Calipari sem vill ekki hægja á landsliðinu í leik sínum til þess eins að geta haft Villanueva í leikmannahópnum.
Calipari landsliðsþjálfari Dóminíska Lýðveldisins stýrði liðinu til bronsverðlauna á FIBA Americas mótinu síðasta sumar og stýrði svo Kentucky Wildcats til NCAA háskólatitilsins.
Þrátt fyrir fjarveru Villanueva telur Calipari að liðið eigi góða möguleika á því að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í London.






