Nýliðar Augnabliks höfðu sigur í 2. deild karla á síðasta tímabili og reyna því fyrir sér í 1. deild á komandi vertíð. Karfan.is setti sig í samband við Þórólf Heiðar Þorsteinsson einn forsvarsmanna liðsins sem kvað sína menn búast við skemmtilegum vetri.
Hvernig hefur sumarið gengið?
Sumarið er tíminn. Hópurinn hefur komið reglulega saman til iðkunar körfubolta og eflingu liðsanda. Þó hefur ríkt sú gullna meginregla að enginn verður krýndur meistari á sumrin nema sumarkeppni sé.
Hvaða breytingar hafa orðið á hópnum?
Talsverðar breytingar hafa orðið. Kristján Rúnar Sigurðsson hefur ákveðið að leita á önnur mið og Aðalsteinn Pálsson mun hefja nám erlendis. Við höfum hins vegar fengið til liðs við okkur valinkunna og reynda spilara, þ. á m. Lúðvík Bjarnason, Helga Hrafn Þorláksson, Einar Val Gunnarsson og Sigurð Samik Davidsen. Þá standa samningaviðræður yfir við nokkra einstaklinga og eru á viðkvæmu stigi.
Hvernig leggst 1. deildin í þig undir 4-1 reglunni?
Prýðilega. Þessi regla hentar klúbbi eins og Augnabliki mjög vel enda verða leikmenn og liðstjórar ekki á launaskrá.
Við hverju býst þú á næstu leiktíð, hverjir finnst þér líklegir í toppbaráttuna?
Við búumst við skemmtilegum vetri þar sem margir leikmenn fá nú loks tækifæri til að gera mistök, ná árangri og vonandi blómstra. Þá höldum við að deildin verði jafnari en margur heldur. Sterkustu liðin á pappírnum í stafrófsröð eru Breiðablik, Hamar, Haukar og Valur. En pappírinn vinnur ekki leiki.
Hvernig metur þú möguleika þíns liðs?
Augnablik samanstendur af leikmönnum sem hafa mikla reynslu og getu. Þar vantar ekkert upp á. Ef formið verður gott, engin alvarleg meiðsl og höfð verður í heiðri sú lífsskoðun Augnabliks að hver og einn liðsmaður er órjúfanlegur þáttur í einni sterkri keðju – þá metum við möguleika okkar nokkuð góða – jafnvel mjög góða.
Augnablik hefur leik í 1. deild á heimavelli þann 12. október þegar Hamar kemur í heimsókn.
Mynd/ Sigurlið Augnabliks í 2. deild karla á síðustu leiktíð.





