HomeFréttirAuglýsa eftir þjálfurum

Auglýsa eftir þjálfurum

Körfuknattleiksfélag ÍA auglýsir eftir þjálfurum fyrir yngri flokka félagsins, og er í boði bæði fullt starf eða þjálfun stakra flokka. Helstu verkefni fela í sér að skipuleggja markvissar æfingar, kenna grunnatriði körfuboltans, efla jákvæð samskipti og styðja við líkamlega og andlega heilsu iðkenda. Einnig á þjálfarinn að undirbúa lið fyrir keppni, eiga góð samskipti við foreldra og vera góð fyrirmynd í framkomu og íþróttamennsku.

Í boðinu er leitað eftir einstaklingum sem búa yfir skipulagshæfni, metnaði og faglegum vinnubrögðum, auk þess sem framúrskarandi hæfni í samskiptum er skilyrði og reynsla af þjálfun er kostur. Fyrir frekari upplýsingar er hægt að heyra í Birkir í síma 865-2022, en umsóknir sendast á netfangið [email protected]. Umsóknarfrestur er til 30. maí.

Fréttir
- Auglýsing -