Úrslitakeppni Bónus deildar karla fer af stað í kvöld með tveimur leikjum í átta liða úrslitum.
Deildarmeistarar Grindavíkur, sem tryggðu sér efsta sætið með átján sigrum í vetur, fá Njarðvík í heimsókn. Á sama tíma mætast Stjarnan og KR í Garðabæ, en liðin enduðu í þriðja og sjötta sæti deildarkeppninnar. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í undanúrslit og eru þessi tvö einvígi fyrstu skrefin í átt að Íslandsmeistaratitlinum. Hinir tveir leikirnir í átta liða úrslitum hefjast annað kvöld.
Leikir dagsins:
- 19:00: Grindavík – Njarðvík (HS Orku-höllin)
- 19:30: Stjarnan – KR (ÞG Verk höllin)




