spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaÁtta leikmenn skrifuðu undir á Ísafirði

Átta leikmenn skrifuðu undir á Ísafirði

Vestri hefur gengið frá samningi við átta leikmenn meistaraflokks kvenna. Þessi hópur myndar sterkan kjarna heimastúlkna fyrir komandi tímabil í 1. deild kvenna því allir leikmennirnir eru uppaldir hjá félaginu. Undirskriftin var söguleg því þetta er í fyrsta sinn sem skrifað er undir leikmannasamninga við leikmenn meistaraflokks kvenna hjá Vestra frá stofnun félagsins 2016. Fimm ár eru síðan síðast var teflt fram liði i meistaraflokki á Ísafirði og þá undir merkjum KFÍ.

Eins og fram kemur í viðtölum við leikmenn og þjálfara er það skref að tefla fram meistaraflokki kvenna gríðarlega mikilvægt fyrir félagið. Með því verða til fyrirmyndir af báðum kynjum fyrir yngri iðkendur og tækifæri til að taka næsta skref í íþróttinni.

Eftirtaldir leikmenn skrifuðu undir samninga:

Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir

Gréta Hjaltadóttir

Hera Magnea Kristjánsdóttir

Ivana Yordanova

Katla María Magdalena Sæmundsdóttir

Sara Emily Newman

Snæfríður Lillý Árnadóttir

Stefanía Silfá Sigurðardóttir

Eins og áður hefur verið greint frá hefur Vestri einnig samið við erlendan leikmann, Oliviu Crawford sem er væntanleg til landsins. Að sögn Péturs Más Sigurðssonar, þjálfara liðsins, hafa æfingar á undirbúningtímabilinu farið vel af stað og einkennst af dugnaði og stemmningu. Þótt kjarninn í hópnum sé nú kominn er þó enn pláss fyrir fleiri leikmenn sem sjá tækifæri í því að fá spilatíma, reynslu og ábyrgð.Hér að neðan er viðtal við Pétur Má og tvo leikmenn liðsins þær Dagbjörtu Ósk Jóhannsdóttur og Kötlu Maríu Sæmundsdóttur.   

Viðtöl:

Fréttir
- Auglýsing -