HomeFréttirAtli Freyr valinn í úrvalslið Evrópumótsins eftir frábæra frammistöðu

Atli Freyr valinn í úrvalslið Evrópumótsins eftir frábæra frammistöðu

Strax að loknum æsispennandi úrslitaleik Íslands og Króatíu á Evrópumóti U16 landsliða í B-deild í Makedóníu var Atli Freyr Haraldsson Katrínarson valinn í úrvalslið mótsins (All-Star Five).

Valið er gríðarleg viðurkenning fyrir Atla Frey sem átti stórkostlegt mót í íslenska búningnum og leiddi liðið á mörgum mikilvægum augnablikum á leið þess í úrslitaleikinn og upp í A-deild. Atli fór til að mynda fyrir liðinu í úrslitaleiknum með 18 stig og 12 fráköst og skilaði glæsilegri tölfræði í gegnum allt mótið.

Þetta er jafnframt mikill heiður fyrir íslenska hópinn og starfið í kringum liðið. Þess má geta að alls voru þrír íslenskir leikmenn tilnefndir í kjörinu um verðmætasta leikmann mótsins (MVP), þeir Atli Freyr, Jón Breki Sigurðarson og Kormákur Nói Jack, sem sýnir vel hve eftirtektarvert gengi íslenska liðsins var á mótinu.

Fréttir
- Auglýsing -