Alba Berlín byrjaði átta liða úrslit þýsku úrvalsdeildarinnar deildarinnar á sigri í kvöld þegar liðið hafði betur gegn Vechta með fimm stiga mun, 90:85.
Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson lék afar vel í liði Alba Berlín og átti stóran þátt í nauma sigrinum. Hann skilaði fjórtán stigum í leiknum, ásamt því að gefa sjö stoðsendingar og taka fjögur fráköst.
Með þessu er Alba Berlín komið með 1:0 forystu í einvíginu, en liðin mætast næst á heimavelli Vechta á föstudaginn. Vinna þarf tvo leiki samtals til þess að tryggja sig áfram í undanúrslit deildarinnar.



