Slóvenía tryggði sér sæti í undanúrslitum Eurobasket 2017 í kvöld með góðum sigri á Lettlandi. Slóvenar voru betri framan af leik en Lettland komst yfir rétt fyrir hálfleik.
Goran Dragic dróg Slóveníu vagninn af stað með 11-0 áhlaupi í byrjun seinni hálfleiks og kom Slóveníu í góða stöðu. Lettar með Portzingis fremstan meðal jafningja gáfust aldrei upp og héldu leiknum jöfnum fram á lokamínúturnar.
Hinn átján ára Luka Doncic tryggði síðan sigurinn með ótrúlegum körfum í lokin. Setti galin þriggja stiga skot og síðan vítaskot á lokasekúndunum ískaldur og lokaði leiknum. Lokastaðan var 103-97 en dómari leiksins gaf út gríðarlegt magn af tæknivillum í lokin er Anthony Randolph og Kristaps Portzingis lentu saman.
Portzingis átti ótrúlegan leik fyrir Lettland þrátt fyrir að hafa tapað, hann var með 34 stig í leiknum. Luka Doncic og Goran Dragic fóru fyrir liði Slóveníu í leiknum, Doncic með 27 stig og 9 fráköst en Dragic með 26 stig, 8 stoðsendingar og 6 fráköst.
Slóvenía mætir Spáni í undanúrslitum mótsins á fimmtudag en leikurinn fer fram kl 18:30 á Íslenskum tíma.
Luka from DOWNTOWNpic.twitter.com/fSwYmh4RaM
— Eurohoops.net (@Eurohoopsnet) September 12, 2017




