spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaAþena tók forystu í úrslitaeinvígi fyrstu deildarinnar

Aþena tók forystu í úrslitaeinvígi fyrstu deildarinnar

Úrslitaeinvígi fyrstu deildar kvenna rúllaði af stað í kvöld.

Aþena lagði Tindastól nokkuð örugglega, 80-45.

Atkvæðamestar fyrir Aþenu í leiknum voru Sianni Martin með 17 stig, 8 fráköst, 4 stoðsendingar og Jovanka Ljubetic með 16 stig og 3 fráköst.

Fyrir Tindastól var Emese Vida atkvæðamest með 19 stig og 11 fráköst. Henni næst var Andriana Kasapi með 9 stig.

Vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sig upp í Subway deildina.

Tölfræði leiks

Úrslit kvöldsins

Fyrsta deild kvenna – Úrslit

Aþena 80 – 45 Tindastóll

Aþena leiðir 1-0

Fréttir
- Auglýsing -