spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaAþena tók aftur forystu í einvíginu gegn KR

Aþena tók aftur forystu í einvíginu gegn KR

Aþena lagði KR í kvöld í þriðja leik undanúrslita fyrstu deildar kvenna, 77-70. Aþena hefur því unnið tvo leiki og geta með sigri í næsta leik tryggt sig í úrslitaeinvígið.

Aþena byrjaði af krafti og leiddi 27 – 14 eftir fyrsta leikhluta. KR kom til baka í öðrum leikhluta og sóttu aðeins á Aþenu og var staðan 44 – 35 í hálfleik.

Seinni hálfleikur var mjög jafn og náði KR að minnka muninn í 4 stig þegar lítið var eftir af leiknum en Aþena stóðst áhlaup þeirra og hafði að lokum betur á lokasprettinum, 77-70.

Atkvæðamest fyrir Aþenu í leiknum var Barbara Zieniewska með 19 stig og 7 fráköst. Fyrir KR var það Michaela Porter sem dró vagninn með 19 stigum og 12 fráköstum.

Fjórði leikur liðanna er á dagskrá komandi fimmtudag 18. apríl á Meistaravöllum.

Tölfræði leiks

Umfjöllun / Magnús Sigurjón Guðmundsson

Fréttir
- Auglýsing -