Aþena hafði betur gegn Breiðabliki, 67–59, í 1. deild kvenna í kvöld frammi fyrir 86 áhorfendum í Austurbergi.
Heimakonur náðu forystunni snemma og héldu henni til leiksloka þrátt fyrir harða baráttu Blika.
Gréta Björg Melsted dró vagninn hjá Aþenu með 25 stig og Darina Andriivna Khomenska átti tröllaleik með 17 stig, 19 fráköst og sjö stolna bolta. Í liði Breiðabliks var Hjörtfríður Óðinsdóttir atkvæðamest með 15 stig.
Aþena – Breiðablik 67–59 (22–13, 15–20, 21–16, 9–10)




