Dominosdeildarliðin eru í óðaönn að kvitta undir samninga við Bandaríkjamenn fyrir næsta tímabil og höfum við hér hjá Karfan.is reynt að heyra í þeim eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir með misjöfnum árangri. Asim McQueen er nýjasta útspil hjá Snæfell og líkt og aðrir hlakkar hann til að koma hefja leik í Stykkishólmi.
"Ég á vona á frábæru ári hjá mér persónulega og ég geri ekki ráð fyrir öðru en að við hjá Snæfell munum vinna titilinn." sagði Asim í viðtali kokhraustur. Asim ólst upp í Alabamaríki og stundaði nám í Tulane háskólanum. "Ef ég ætti að lýsa sjálfum mér sem leikmanni þá er ég fjölhæfur, get skorað jafnt á "blokkinni" eins og í stuttum skotum frá hliðarlínunni. Minn helsti styrkleiki miðað við hæð mína er að ég get dripplað boltanum nokkuð vel og það hjálpar mér í mínum leik." sagði Asim og bætti við að hann þyrfti að fara verslunarleiðangur áður en hann hoppaði uppí flugvélina yfir hafið. " Ég hef ekki heyrt mikið um íslensku deildina en það er nokkuð ljóst að ég þarf að bæta við vetrarfötum í fataskápinn hjá mér."
Von er á Asim til landsins í byrjun september.




