spot_img
HomeFréttirAsim McQueen til Snæfells

Asim McQueen til Snæfells

 Snæfell hefur ráðið til sín Asim McQueen stóran og stæðilegan Bandaríkjamann til að standa vaktina í teignum næsta vetur.  "Okkur vantaði örlítið uppá  þá stöðu í fyrra." sagði Ingiþór við heimasíðu Snæfells.
 Asim McQueen lék með Tulane háskólanum þar sem hann var með 7.7 stig að meðaltali í leik og 4.6 fráköst. Asim er kröftugur leikmaður sem á eftir að styrkja lið Snæfells undir körfunni. Asim lék eftir háskóla í Argentínu þar sem hann var með 15 stig og 7 fráköst í 1. deildinni eftir að hafa verið með 7 stig og 3.4 fráköst í efstu deild. 
Fréttir
- Auglýsing -