Bakvörðurinn Arnþór Freyr Guðmundsson er á förum frá silfurliði Tindastóls. Stefán Jónsson formaður KKD Tindastóls greindi frá þessu í tilkynningu frá félaginu. Í tilkynningunni segir:
Körfuknattleiksdeild Tindastóls og Arnþór Freyr Guðmundsson hafa komist að samkomulagi um að Arnþór leiki ekki með félaginu í seinni umferð Domino's deildarinnar. Er þessi ákvörðun tekin af stjórn félagsins vegna fjárhagsaðstæðna sem tengjast þó ekki Arnþóri Frey Guðmundssyni. Vill stjórn kkd þakka Arnþóri fyrir hans framlag til félagsins.
Arnþór lék 10 deildarleiki með Stólunum og gerði þar 5,2 stig, tók 2,4 fráköst og gaf 2,2 stoðsendingar að meðaltali í þessum tíu leikjum.
Mynd úr safni/ Bára Dröfn – Arnþór í leik með Stólunum gegn Grindavík skömmu fyrir jólahlé.