spot_img
HomeFréttirÁrni Eggert tekur við Blikakonum

Árni Eggert tekur við Blikakonum

Árni Eggert Harðarsvon var í gærkvöldi ráðinn þjálfari kvennaliðs Breiðabliks. Árni tekur við starfinu af Andra Þór Kristinssyni sem var aðalþjálfari liðsins á síðustu leiktíð en Blikar féllu þá í 1. deild kvenna. 

Árni var ráðinn til tveggja ára en hann og Eggert Baldvinsson formaður KKD Breiðabliks handsöluðu samninginn í gærkvöldi. Eins og áður hefur komið fram hélt Andri Þór á önnur mið og er nú hluti af þriggja manna þjálfarateymi Hauka. 

Fréttir
- Auglýsing -