Árni Ragnarsson hefur dregið sig úr íslenska landsliðshópnum að því er fram kemur í færslu hjá leikmanninum á Facebook. Árni segist þar vera að stjórna öðru mikilvægu verkefni á sama tíma.
Verkefnið sem Árni mun fara að sinna lendir á sama tíma og flestar keppnisferðir A-landsliðsins og því hefur Árni ákveðið að draga sig út úr landsliðinu. Í færslunni segist hann þó stefna hart að því að halda áfram að bæta sig og komast í landsliðið á nýjan leik.
Þá hefur Árni einnig staðfest það við Karfan.is að ef hann leiki á Íslandi á næstu leiktíð þá muni hann gera það með uppeldisfélagi sínu Fjölni.
Mynd/ Karl West






