HomeFréttirArnari Frey spáð 7-10. sæti og Axel Kára 6-10. sæti

Arnari Frey spáð 7-10. sæti og Axel Kára 6-10. sæti

 BC Aarhus, liðið sem Arnar Freyr Jónsson samdi við í danmörku fyrir tímabilið er spáð 7. til 10. sæti á heimasíðu dönsku deildarinnar, Nafni hans, Arnar Guðjónsson er þjálfari liðsins sem hét á síðasta tímabili Aabyhöj IF.  BC Aarhus hefur bætt við sig fimm leikmönnum fyrir tímabilið en misst 6 leikmenn og þar af Ólaf Sigurðsson.  Værlöse BBK sem Axel Kárason leikur með er spáð 6. -10. sæti og verða liðin því líklega að berjast á svipuðu reiki í deildinni.  
Axel Kárason hefur leikið við góðan orðstír í dönsku deildinni síðastliðin 2 ár og mun líklega láta til sín taka með Værlöse í ár.  Hann skoraði að meðaltali 11 stig og hirti tæplega 7 fráköst í þeim 30 leikjum sem hann spilaði með liðinu á síðasta tímabili.  
 
Fyrsta umferðin í dönsku deildinni fer fram 22. september næstkomandi en  Arnar Freyr og félagar í BC Aarhus  mæt Aalborg Vikings og fjórum dögum seinna fær Værlöse sterkt lið SISU í heimsókn.  
 
 
Mynd: Henrik Bo
Fréttir
- Auglýsing -