spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaArnar stoðsendingahæstur gegn Melilla

Arnar stoðsendingahæstur gegn Melilla

Landsliðsmaðurinn Sigtryggur Arnar Björnsson og Real Canoe máttu þola tap í kvöld fyrir Melilla í Leb Oro deildinni á Spáni, 70-79. Liðið er nú í öðrum fasa deildarkeppninnar, þar sem að það er í 8. sæti Oro-Perman hlutans með einn sigur og níu tapaða.

Á tæpum 25 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Arnar 12 stigum, 2 fráköstum, 6 stoðsendingum og stolnum bolta. Næsti leikur Real Canoe er þann 4. apríl gegn Caceres.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -