HomeFréttirArnar og Ingibjörg reyna fyrir sér í Danmörku: Erum í góðu líkamlegu...

Arnar og Ingibjörg reyna fyrir sér í Danmörku: Erum í góðu líkamlegu formi

Keflvíkingar sáu í sumrinu á eftir þeim Arnari Frey Jónssyni og Ingibjörgu Jakobsdóttur til Danmerkur en parið ætlar að reyna fyrir sér í gömlu herraþjóðinni. Arnar verður á mála hjá gamla Aabyhoj klúbbnum sem í dag heitir BC Arhus en Ingibjörg verður með kvennaliði félagsins sem enn leikur undir merkjum Aabyhoj. Karfan.is náði stuttu tali af Arnar sem var hógvær og kvað brottför sína úr Keflavík ekki mikla blóðtöku fyrir klúbbinn en öðru máli gengdi með Ingibjörgu.
,,Allan Foss er tekinn aftur við liðinu og Arnar Guðjónsson er aðstoðarþjálfari," sagði Arnar Freyr en bæði hafa þau undanfarið verið að glíma við erfið meiðsli. ,,Ég er nokkuð góður en fer mér hægt í sakirnar, ég æfi einn dag og hvíli þá næsta. Ingibjörg er miklu betri í þessu en ég. Við erum kannski ekki í hlaupaformi en erum samt í góðu líkamlegu formi og höfum lyft vel," sagði Arnar en hann og Ingibjörg dveljast í íbúðinni hjá Ólafi J. Sigurðssyni sem búsettur er úti og lék með Aabyhoj á síðustu leiktíð.
 
,,Við förum brátt í sumarhús hér rétt fyrir utan og þá verðum við á bíl líka," sagði Arnar en hann og Ingibjörg eru að koma sér fyrir ytra. Arnar fór aðallega til Danmerkur vegna viðskipta og mögulega er nám inni í myndinni í náinni framtíð en Ingibjörg verður í námi í vetur með körfuboltanum.
 
Aðspurður um stöðu mála í danska boltanum sagði Arnar að Bakken Bears væru enn illviðráðanlegir. ,,Bakken eru með einhvern peningakall á bak við sig sem dælir í þá peningum en við ætlum að gera nýja hluti með nýtt félag og nýja styrktaraðila á bak við okkkur," sagði Arnar en finnst honum ekkert mikið fyrir hann og Ingibjörgu að segja skilið við Keflavík.
 
,,Þeir spjara sig án okkar, án mín verður það ekkert mál fyrir karlaliðið en Ingibjörg var eini leikstjórnandinn þannig lagað í kvennaliðinu svo það er kannski meiri missir fyrir þær," sagði Arnar hógvær en þeir sem hafa séð Arnar spila vita að hér lætur hann lítið yfir sér.
 
Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Arnar reynir fyrir sér í Danmörku en síðast þá lenti hann í alvarlegum meiðslum. Ingibjörg hinsvegar er að reyna fyrir sér í fyrsta sinn á erlendri grundu og verður fróðlegt að fylgjast með gangi mála hjá þeim báðum.
 
  
Ingibjörg Jakobsdóttir
Fréttir
- Auglýsing -